Hlutverk:
Að markaðssetja og kynna áfangastaðinn og aðildarfélaga á alþjóðlegum
samkeppnismarkaði og taka þátt í alþjóðlegu samstarfi.
Að vera upplýsingaveita um íslenska ráðstefnu- og viðburðamarkaðinn og sinna móttöku
erlendra MICE-skipuleggjenda og blaðamanna.
Að tengja erlenda MICE-kaupendur við íslensk fyrirtæki innan Meet in Reykjavík.
Að byggja upp samfélag íslenskra fyrirtækja á ráðstefnu-, hvataferða- og viðburðamarkaði
og skapa þannig vettvang sérþekkingar innanlands. Að stuðla að faglegum vinnubrögðum
innan greinarinnar, afla tölfræðilegra upplýsinga um MICE-ferðamenn og vera leiðandi afl í
stefnumótun MICE-ferðaþjónustu.
Að hjálpa Íslendingum sem vilja sækja ráðstefnur til landsins með því að aðstoða þá með
markaðsefni og með öðrum stuðningi. Þetta eru svokallaðir ambassadorar Meet in
Reykjavík sem saman mynda Ambassador Club.
Markaðssetning
Öll markaðsetning styður við markmið og hlutverk Meet in Reykjavík og vinnur að því að skapa dálæti á Reykjavík sem
ráðstefnu- og hvataferðaborg og byggja upp vörumerkjavirði gegnum auðkenningu og hugrenningartengsl. Það sem
aðgreinir markaðsstarf Meet in Reykjavík frá hefðbundnu ferðamannamarkaðsstarfi er að aðgerðir eru sniðnar eingöngu að
þröngum en arðbærum hluta ferðamanna. Orðspor og persónuleg tengsl vega gríðarlega mikils og eru stór hluti af
markaðssamskiptum en til að skapa áhuga er nauðsynlegt að nýta vefmiðla, fagtímarit og markpósta. Innra markaðsstarf er
ekki síður mikilvægt þar sem samfélag fyrirtækja sem standa að MICE hafa vettvang samskipta og stefnumótunar. Auk
margþættra markaðsaðgerða vinnur Meet in Reykjavík með sendiráðum erlendis og söluskrifstofum Icelandair víðsvegar um
heim til að nálgast viðskiptavini.
Markhópar
Erlendir MICE-skipuleggjendur innan fyrirtækja, fagfélaga og umboðsskrifstofa.
Samtök sem halda alþjóðlegar ráðstefnur með sérstaka áherslu á ráðstefnur utan háannatíma.
Einstaklingar með gott alþjóðlegt tengslanet sem hafa getu og vilja til að fá ráðstefnu eða viðburð til Íslands.
Markaðssvæði
Aðaláhersla er á borgir og lönd með beint flug til Íslands. Fjarmarkaðir eru í skoðun.
Samhæfð markaðssamskipti
Meet in Reykjavík leggur áherslu á skýr skilaboð þar sem áhersla er lögð á:
Auðvelt aðgengi
Góða innviði og öryggi
Faglega þjónustu og góða tækniþekkingu
Einstaka náttúru og upplifun